Búa til dagbókaratriði
1. Til að bæta nýju atriði inn í dagbókina skaltu velja
dagsetninguna og velja síðan
Valkostir
>
Nýtt atriði
og
úr eftirfarandi:
●
Fundur
— Bæta við áminningu um fundinn.
●
Fundarboð
— Búa til og senda nýtt fundarboð. Þú
þarft að hafa pósthólf til að geta sent fundarboð.
●
Minnisatriði
— Skrifa almennan minnismiða um
daginn.
●
Afmæli
— Bæta við áminningu um afmæli og aðra
merkisdaga (færslurnar eru endurteknar á hverju ári).
●
Verkefni
— Bæta við áminningu um verkefni sem þarf
að ljúka fyrir tiltekinn dag.
2.
Hægt er að bæta við lýsingu á færslu með því að velja
Valkostir
>
Bæta við lýsingu
.
3. Veldu
Lokið
til að vista atriðið.
Ábending: Ýttu á takka (0-9) í daga-, viku eða
mánaðarskjá dagbókarinnar. Fundaratriði opnast og
stafirnir sem þú hefur slegið inn birtast í efnisreitnum.
Í verkefnum opnast verkefnafærsla.
Þegar dagbókartónn heyrist velurðu
Hljóð af
til að slökkva á
honum.
Slökkt er á dagbókartóni með því að velja
Stöðva
.
Til að stilla á blund skaltu velja
Blunda
.
Til að tilgreina eftir hve langan tíma dagbókartónninn heyrist
aftur þegar stillt er á blund velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Tími blunds
.