Orkusparnaður
Þegar rafhlaðan er fullhlaðin og hleðslutækið tekið úr
sambandi við tækið skaltu taka hleðslutækið úr sambandi við
innstunguna.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna eins oft ef þú gerir
eftirfarandi:
● Lokaðu og gerðu óvirk forrit, þjónustu og tengingar þegar
þær eru ekki í notkun.
● Minnkaðu birtustig skjásins.
● Stilltu tækið þannig að það fari í orkusparnaðarstillingu
eftir lágmarkstíma af aðgerðaleysi, ef tækið bíður upp á
það.
● Slökktu á ónauðsynlegum hljóðum, eins og takkatónum
og hringitónum.