PIN- og PUK-númer
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.
● PIN-númer (Personal identification number) — Númerið
hindrar að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi. PIN-númerið
(4-8 tölustafir) fylgir yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-
númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu
lokað og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.
● PIN2-númer — Númerið (4-8 tölustafir) fylgir sumum SIM-
kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma valkosti
tækisins.
● PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er
nauðsynlegt til að breyta PIN-númeri eða PIN2-númeri
sem hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-
kortinu skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem lét
þig fá SIM-kortið.