Áskrift að þjónustu
Veldu >
Forrit
>
Samn. á neti
.
Hægt er að gerast áskrifandi að samnýtingarþjónustu á
netinu með því að fara á heimasíðu þjónustuveitunnar og
kanna hvort Nokia-tækið þitt samhæfist þjónustunni. Þar eru
leiðbeiningar um hvernig hægt er að gerast áskrifandi. Þú
færð notandanafn og lykilorð til að geta sett áskriftina upp í
tækinu.
1. Til að gera þjónustu virka opnarðu samnýtingarforritið í
tækinu, velur þjónustu og
Valkostir
>
Virkja
.
2. Gefðu tækinu tíma til að koma á nettengingu. Ef beðið er
um internetaðgangsstað velurðu hann af listanum.
3. Skráðu þig í áskriftina eins og kveðið er á um á heimasíðu
þjónustuveitunnar.
Þjónusta Nokia við samnýtingu á netinu er ókeypis. En ef
gagnaflutningur fer fram á netinu kann þjónustuveitan að
innheimta gjald. Þjónustuveitan eða viðkomandi þriðji aðili
gefa upplýsingar um hvort þjónusta þriðja aðila sé tiltæk og
hvað sú þjónusta og gagnaflutningur kosta.