Nokia 6760 slide - Flutningur efnis

background image

Flutningur efnis

Hægt er að nota forritið

Símaflutn.

til að afrita gögn, t.d.

símanúmer, heimilisföng, dagbókaratriði og myndir, úr

gamla Nokia-tækinu yfir í Nokia 6760 slide með Bluetooth.
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að flytja úr því.

Ef tækið styður samstillingu er einnig hægt að samstilla gögn

milli tækja. Nokia 6760 slide lætur þig vita ef hitt tækið er

ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-kort sé í

því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Þegar kveikt er á Nokia

6760 slide án SIM-korts er ótengda sniðið sjálfkrafa valið og

flutningur getur farið fram.

Efni flutt í fyrsta skipti

1. Til að sækja gögn af hinu tækinu í fyrsta skipti skaltu velja

Símaflutn.

í símauppsetningunni, í Nokia 6760 slide, eða

velja >

Verkfæri

>

Símaflutn.

.

2. Veldu tengigerðina sem þú vilt nota til að flytja gögn.

Bæði tækin verða að styðja tengigerðina.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

18

background image

3. Ef þú hefur valið Bluetooth skaltu tengja tækin saman.

Veldu

Áfram

til að láta tækið leita að tækjum með

Bluetooth-tengingu. Veldu tækið sem þú vilt flytja efni úr.

Tækið biður þig að slá inn kóða í Nokia 6760 slide Sláðu

inn kóða (1-16 tölustafi að lengd) og veldu

Í lagi

. Sláðu

inn sama kóða í hitt tækið og veldu

Í lagi

. Þá eru tækin

pöruð.
Ekki er víst að sumar eldri útgáfur Nokia-tækja séu með

Símaflutningsforritið. Þá er forritið sent í hitt tækið í

skilaboðum. Símaflutningsforritið er sett upp í hinu

tækinu með því að opna skilaboðin og fylgja

leiðbeiningunum.

4. Í Nokia 6760 slide tækinu velurðu efnið sem þú vilt flytja

úr hinu tækinu.
Hægt er að hætta við flutning og ljúka honum síðar.

Efni er flutt úr minni hins tækisins á samsvarandi stað í Nokia

6760 slide. Flutningstíminn veltur á því gagnamagni sem á

að flytja.