Að færast til á korti
Þegar GPS-tengingin er virk er núverandi staðsetning sýnd á
kortinu með .
Til að birta núverandi eða síðast þekktu staðsetningu þína
velurðu
Valkostir
>
Núv. staður
.
Til að færast til á kortinu skaltu fletta upp eða niður, eða til
hægri eða vinstri, með skruntakkanum. Sjálfgefið er að stefna
kortsins sé í norður.
Þegar virk gagnatenging er í gangi og kortið er skoðað á
skjánum er nýju korti hlaðið sjálfkrafa niður ef farið er inn á
svæði sem ekki er á kortunum sem búið er að hlaða niður.
Kortin eru sjálfkrafa vistuð í minni tækisins eða á samhæfu
minniskorti ef slíkt kort er í tækinu.
Til að auka eða minnka aðdrátt að kortinu skaltu ýta á vinstri
og hægri skiptitakkana, eða skiptitakkann og bakktakkann,
allt eftir takkaborðinu á tækinu.
Til að breyta gerð kortsins ýtirðu á
Valkostir
>
Kortastilling
.