GPS-gögn
.
GPS-gögn eru hönnuð til að gefa leiðarlýsingu til tiltekins
staðar, upplýsingar um staðsetningu hverju sinni sem og
ferðaupplýsingar, t.d. áætlaða fjarlægð til áfangastaðar og
áætlaðan ferðatíma þangað.
Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp í gráðum og broti úr
gráðum og alþjóðlega WGS-84 hnitakerfið er notað.
Til að nota GPS-gögn þarf GPS-móttakari tækisins fyrst að
taka á móti staðsetningarupplýsingum frá a.m.k. þremur
gervihnöttum til að reikna út hnit þess staðar sem þú ert
staddur/stödd á. Þegar frumútreikningur hefur farið fram
kann það að vera mögulegt að reikna út hnit fyrir
staðsetningu þína með þremur gervitunglum. Hins vegar er
útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri gervitungl finnast.