Snið
Veldu >
Verkfæri
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og
aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði, umhverfi og
viðmælendahópa. Sniðið sem er í notkun sést efst á skjánum
í biðstöðu. Ef sniðið Almennt er í notkun birtist aðeins
dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýtt
og tilgreina stillingarnar.
Til að laga snið að þínum þörfum velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Sérsníða
.
Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Gera
virkt
. Ótengda sniðið hindrar þig í að kveikja óvart á tækinu,
senda eða taka á móti skilaboðum eða nota Bluetooth-
tengingu, GPS eða FM-útvarp. Það lokar einnig öllum þeim
internettengingum sem eru virkar þegar sniðið er valið.
Ótengda sniðið kemur ekki í veg fyrir að nýjum Bluetooth-
tengingum sé komið á seinna eða að GPS eða FM-útvarp sé
endurræst. Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum þegar
þú notar þessa möguleika.
Til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í allt að 24 tíma skaltu
fletta að sniðinu, velja
Valkostir
>
Tímastillt
og svo tímann.
Þegar tíminn er liðinn verður fyrra sniðið sem var ekki
tímastillt virkt aftur. Þegar snið er tímastillt birtist á
skjánum í biðstöðu. Ekki er hægt að stilla ótengda sniðið á
tíma.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til velurðu
Valkostir
>
Eyða sniði
. Þú getur ekki eytt forstilltu sniðunum.